Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Náttúrustofa Norðausturlands

Náttúrustofa Norðausturlands er rannsóknastofnun á sviði náttúrufræða sem staðsett er á Húsavík. Hún er ein af sjö náttúrustofum sem starfræktar eru á Íslandi. Náttúrustofurnar hafa allar sama hlutverki að gegna en þær starfa á mismunandi landssvæðum. Starfssvæði Náttúrustofu Norðausturlands nær frá Ólafsfirði í vestri og austur á Langanes.

Náttúrustofa Norðausturlands er rekin af Norðurþingi og Skútustaðahreppi með stuðningi ríkisins.


Fréttir og tilkynningar

23.1.2012

Fræðsluerindi SNS í janúar

Fræðsluerindi SNS í janúar verður haldið fimmtudaginn 26. janúar kl. 12:15 og mun fjalla um hópatferli andarunga. Rán Þórarinsdóttir á Náttúrustofu Austurlands mun flytja erindið og verður meðal annars hægt að fylgjast með erindinu um fjarfundabúnað Þekkingarnets Þingeyinga á Húsavík og á Menntasetrinu á Þórshöfn.

2012-Januar-3 

19.1.2012

Vetrarfuglatalningu lokið

Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar Íslands fór fram í fyrrihluta janúar og var þetta jafnframt í 60. skipti sem þessar talningar eiga sér stað! Að þessu sinni sáust tæplega 32.000 fuglar á 24 svæðum í Þingeyjarsýslum.

 yk_allall120104_1


Starfssvæði

Þekkingarsetur Þingeyinga



Mynd