Föstudagskvöldið 6. ágúst s.l. stóð Vatnajökulsþjóðgarður fyrir fræðslukvöldi um fiðrildi í Ásbyrgi þar sem Aðalsteinn Örn Snæþórsson líffræðingur og kennari hélt fræðsluerindi um fiðrildi í Gljúfrastofu og fór að því loknu með þátttakendur í gönguferð að Ási þar sem fiðrildagildran var tæmd með aðstoð ungra gesta.
|