Fréttir Nįttśrustofu Noršausturlands
20.2.2012
Fręšsluerindi um lunda og sķli
Næsta fræðsluerindi SNS verður haldið fimmtudaginn 23. febrúar kl. 12:15. Þá mun Erpur Snær Hansen flytja fyrirlestur sem hann kallar "Samanburður breytinga á stofnum lunda og sílis við Ísland og í Norðursjó".
13.2.2012
Starfsmašur ķ žjįlfun
Undanfarnar 3 vikur dvaldi Yann Kolbeinsson, líffræðingur á Náttúrustofunni, í Danmörku þar sem hann kynnti sér aðferðir við talningar á fuglum á sjó úr flugvél.

6.2.2012
Nż fišrildategund finnst į Ķslandi
Fiðrildið Maniola jurtina fannst í fyrsta sinn á Íslandi í sumar. Landvörður Vatnajökulsþjóðgarðs fann fiðrildið norðan Vatnajökuls.

23.1.2012
Fręšsluerindi SNS ķ janśar
Fræðsluerindi SNS í janúar verður haldið fimmtudaginn 26. janúar kl. 12:15 og mun fjalla um hópatferli andarunga. Rán Þórarinsdóttir á Náttúrustofu Austurlands mun flytja erindið og verður meðal annars hægt að fylgjast með erindinu um fjarfundabúnað Þekkingarnets Þingeyinga á Húsavík og á Menntasetrinu á Þórshöfn.
19.1.2012
Vetrarfuglatalningu lokiš
Árleg vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar Íslands fór fram í fyrrihluta janúar og var þetta jafnframt í 60. skipti sem þessar talningar eiga sér stað! Að þessu sinni sáust rúmlega 32.000 fuglar á 25 svæðum í Þingeyjarsýslum.

9.1.2012
Vetrarstöšvar ritu afhjśpašar
Nýlega birtist vísindagrein í tímaritinu Diversity and Distributions þar sem gerð var grein fyrir því hvar ritur úr fjölmörgum vörpum við Norður Atlantshaf, m.a. íslenskar, halda sig á veturna. Greinin er afrakstur alþjóðlegs samstarfs um rannsóknir á dreifingu rita utan varptíma og hefur Náttúrustofa Norðausturlands haft umsjón með þeim hér á landi.
14.12.2011
Nįttśrustofan fęr styrki frį VINUM VATNAJÖKULS
Í haust auglýstu VINIR VATNAJÖKULS eftir styrkumsóknum en VINIR VATNAJÖKULS eru hollvinasamtök Vatnajökulsþjóðgarðs. Hlutverk samtakanna er að afla fjár til að styrkja rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf sem stuðlar að því að sem flestir geti notið náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs.
29.11.2011
Farleišir og vetrarstöšvar ķslensku skrofunnar
Yann Kolbeinsson líffræðingur á Náttúrustofunni flytur erindi sitt um farleiðir og vetrarstöðvar íslensku skrofunnar á Hrafnaþingi miðvikudaginn 30. nóvember n.k.

28.11.2011
Rjśpnavęngir óskast!
Náttúrustofan óskar eftir því að fá rjúpnavængi frá veiðimönnum. Vængirnir eru notaðir til aldursgreiningar en niðurstöður þeirra segja til um stofnsveiflu rjúpunnar sem er einn af þeim þáttum sem Náttúrufræðistofnun Íslands byggir veiðiráðgjöf sína á. Það er mikilvægt að fá sem flesta vængi svo niðurstaðan verði sem áreiðanlegust. Óskað er eftir hægri væng og er best að klippa hann af við ystu liðamót. Vængjunum má svo koma hingað á Náttúrustofuna.
18.11.2011
Nįttśrustofan į ferš og flugi
Starfsmenn Náttúrustofunnar hafa verið að kynna rannsóknarniðurstöður sínar á ráðstefnum bæði hérlendis og erlendis.







