Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir Náttúrustofu Norðausturlands

18.11.2011

Náttúrustofan á ferð og flugi

The Waterbird Society, alþjóðlegt félag um rannsóknir á vatnafuglum, hélt sína 35. ráðstefnu í Annapolis í Bandaríkjunum dagana 9.-12. nóvember. Kynnt voru 80 erindi og 31 veggspjald og sjá má útdrætti í ráðstefnuritinu. Tvær af þeim rannsóknum sem Náttúrustofa Norðausturlands hefur verið að vinna að undanfarin ár voru kynnt á ráðstefnunni í einu erindi og á einu veggspjaldi:

Migration and fidelity to wintering areas of Manx Shearwaters Puffinus puffinus nesting in Iceland. Ágrip erindis (bls. 50).

Winter distribution of Horned Grebes nesting in Iceland. Veggspjald - Ágrip (bls. 73).

 

Líffræðifélag Íslands hélt í Reykjavík dagana 11. og 12. nóvember rástefnu um líffræðirannsóknir á Íslandi. Rannsóknirnar voru kynntar í 84 erindum og á 77 veggspjöldum og má sjá útdrættir erinda og veggspjalda á síðunni http://lif.gresjan.is/2011/. Þrjár af þeim rannsóknum sem Náttúrustofa Norðausturlands hefur verið að vinna að undanfarið voru þar til kynningar í tveimur erindum og á einu veggspjaldi:

Fiðrildavöktun Náttúrustofanna. Ágrip erindis.

Fjölbreytileiki og uppbygging smádýrasamfélaga í hálendistjörnum. Ágrip erindis.

Summer mortality and reproduction of female rock ptarmigan in Iceland. Veggspjald - Ágrip.


Starfssvæði

Þekkingarsetur Þingeyinga



Mynd