Aftur á forsíðu

 

Félag fuglaáhugamanna
í Þingeyjarsýslum

 

Um stofnunina  

Náttúrustofa Norðausturlands sem staðsett er á Húsavík var stofnuð þann 27. ágúst 2003 og tók til starfa 1. október sama ár. Þann 10. ágúst 2004 var Náttúrstofan formlega opnuð af Siv Friðleifsdóttur umhverfisráðherra. Þann sama dag var Þekkingarsetur Þingeyinga einnig opnað formlega af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Náttúrustofan og Þekkingarsetrið hafa verið í nánu samstarfi frá upphafi. 

Náttúrustofurnar eru sjö talsins og staðsettar víðs vegar um landið. Þær starfa samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur nr. 60/1992 með síðari breytingum. Náttúrustofa Norðausturlands var sú sjöunda í röðinni og nær starfssvæði hennar frá Ólafsfirði í vestri og austur á Langanes. Hún er rekin af sveitarfélögunum Norðurþingi og Skútustaðahreppi með aðkomu ríkisins.

 

Starfssvæði
Þekkingarsetur Þingeyinga

Náttúrustofa Norðausturlands • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: nna@nna.is