Aftur á forsíðu

 

Félag fuglaáhugamanna
í Þingeyjarsýslum

 

Starfssvæði  

Starfssvæði Náttúrustofunnar, Norðausturland, frá Ólafsfirði í vestri og austur á Langanes er mjög fjölbreytt hvað náttúrufar varðar. Á svæðinu má finna mörg merkileg náttúrufyrirbæri og skiptir engu hvort um er að ræða á sviði jarðfræði eða líffræði.

Hnattfræðileg staða starfssvæðis Náttúrustofu Norðausturlands er sú nyrsta miðað við starfssvæði annarra náttúrustofa á Íslandi. Heimskautsbaugurinn liggur þvert í gegnum Grímsey og nyrsti tangi meginlandsins, Hraunhafnartangi á Melrakkasléttu, teygir sig í átt að honum. Bjartar sumarnætur og fallegt sólarlag þar sem sólin sleikir hafflötinn út við ystu sjónarrönd eru því eitt af einkennum svæðisins.

Starfssvæði
Þekkingarsetur Þingeyinga

Náttúrustofa Norðausturlands • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: nna@nna.is