|
Félag fuglaáhugamanna í Þingeyjarsýslum var stofnað á Húsavík þann 19. apríl 2004. Tilgangur félagsins er m.a. að afla upplýsinga um fugla, stuðla að vernd þeirra og auka almennan áhuga og þekkingu á fuglum. Nánar má sjá um tilgang félagsins í lögum þess.
Öllum þeim er aðhyllast markmið félagsins er frjáls aðild að því og er hún ókeypis. Áhugasamir geta skráð sig sem félaga með því að senda tölvupóst á nna@nna.is Tilgreina þarf nafn, kennitölu, heimili og netfang. Einnig er hægt að hringja í síma Náttúrustofunnar 464 5100.
Núverandi stjórn skipa Aðalsteinn Örn Snæþórsson (formaður), Gaukur Hjartarson og Már Höskuldsson.
Náttúrustofa Norðausturlands mun hýsa félagið og verða fréttir og tilkynningar þess að finna á heimasíðu stofunnar.
|