|
Vöktun vatnafugla felst í því að fara tvisvar á sumri og telja á ákveðnum svæðum. Metinn er fjöldi fugla að vori og aftur síðsumars til að meta framleiðslu.
Markmiðið er að fylgjast með þróun vatnafuglastofna í Þingeyjarsýslum utan Mývatns, Laxár, Svartár og Svartárvatns (svæði sem vöktuð eru af Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn (RAMÝ)). Reynt er í samvinnu við RAMÝ að ná utan um heildarstofn nokkurra tegunda hér á landi (flórgoði, húsönd, hrafnsönd, gargönd). Fylgst er með vatnafuglastofnunum á votlendissvæðum í Ljósavatnsskarði, Reykjadal, Aðaldal og Kelduhverfi og notaðar eru sambærilegar aðferðir og þróaðar hafa verið við vatnafuglatalningar á Mývatni.
Eitt af svæðunum sem náttúrustofan fylgist nú með er Víkingavatn í Kelduhverfi en þaðan eru elstu talningarnar til af þeim svæðum sem stofan vaktar nú. Á árunum 1964-1984 var það talið óreglulega; af Hugh Boyd árið 1964 og Jon Fjeldså árið 1974 og á árunum 1976-1984 var það m.a. talið af Arnþóri Garðarssyni, Árna Einarssyni og Ólafi K. Nielsen. Árið 1994 hóf RAMÝ árlegar talningar við vatnið og frá 2004 hefur náttúrustofan komið að talningunum.
Niðurstöður vortalninganna má sjá hér fyrir neðan. Eldri talningar frá Víkingavatni eru birtar hér með góðfúslegu leyfi talningarmanna og RAMÝ.
Útskýringar: Svartir hringir tákna fjölda á Víkingavatni en rauðir þríhyrningar fjölda á öðrum votlendissvæðum í Þingeyjarsýslum sem vöktuð eru af náttúrustofunni.
Explanations: The plots below show the trend of waterbird populations in two areas of North-East Iceland. The black circles represent lake Víkingavatn and the red triangles represent most other wetlands of the lowland valleys (Ljósavatnsskarð, Reykjadalur, Aðaldalur & Kelduhverfi).
|