Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Samstarf

Náttúrustofan vinnur í samstarfi við nokkrar stofnanir sem tengjast starfsemi hennar. Bæði er um að ræða samstarf við rannsóknir og samnýtingu aðstöðu.

Þekkingarsetur Þingeyinga
Náttúrustofa Norðausturlands hefur aðsetur innan Þekkingarseturs Þingeyinga. Stofnanirnar samnýta þannig aðstöðu en auk þess eiga stofnanirnar gott samstarf við margvísleg verkefni. 

Hvalamiðstöðin
Náttúrustofa Norðausturlands og Hvalamiðstöðin á Húsavík eiga með sér samstarf um samnýtingu á húsnæði. Þannig hefur Náttúrustofan t.a.m. aðgang að fyrirlestrasal Hvalamiðstöðvarinnar.

Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn
Náttúrustofa Norðausturlands og Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn (RAMÝ) eiga með sér gott samstarf og hafa stofnanirnar gert með sér formlegan samstarfssamning.

Náttúrustofan hefur til að mynda unnið í nánu samstarfi við RAMÝ að vöktun vatnafugla í Þingeyjasýslum.

Náttúrufræðistofnun Íslands
Náttúrustofa Norðausturlands og Náttúrufræðistofnun Íslands eiga með sér gott samstarf.

Meðal þeirra verkefna sem unnin hafa verið í samstarfi við Náttúrufræðistofnun eru:

Stofnstærð og útbreiðsla íslenska flórgoðastofnsins. Stofnanirnar stýra í sameiningu landsúttekt á flórgoðastofninum árin 2004-2005. Stofnanirnar hafa leitað aðstoðar einstaklinga og nokkurra náttúrustofa við gagnasöfnun  en frekari upplýsingar um verkefnið má finna hér.

Vöktun rjúpnastofnsins. Náttúrustofan hefur aðstoðað dr. Ólaf K. Nielsen, starfsmann NÍ, við rjúpnatalningar.

Samtök náttúrustofa
Samtök Náttúrustofa (SNS) voru stofnuð formlega þann 16. maí 2002. Náttúrustofa Norðausturlands gerðist aðili að samtökunum skömmu eftir að stofan hóf rekstur en aðilar að samtökunum eru náttúrustofur, sem starfa eftir lögum nr. 60/1992 um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, sbr. lög nr. 92/2002. Markmið samtakanna má finna á heimasíðu þeirra www.sns.is

Auk Náttúrustofu Norðausturlands eru sex aðrar náttúrustofur starfandi á landinu og eru allar aðilar að SNS. Stofurnar eru:

Náttúrustofa Austurlands www.na.is
Náttúrustofa Suðurlands www.nattsud.is
Náttúrustofa Reykjaness www.nr.is
Náttúrustofa Vesturlands www.nsv.is
Náttúrustofa Vestfjarða www.nave.is
Náttúrustofa Norðurlands vestra www.nnv.is

SNS hefur gert formlega samstarfssamininga við Hólaskóla og Náttúrufræðistofu Kópavogs


Starfssvæði

Þekkingarsetur Þingeyinga



Mynd