Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Starfsemi

Sérsvið Náttúrustofunnar er á sviði fuglarannsókna ásamt almennri dýravistfræði. Stofan sér um ýmis konar vaktanir á dýralífi á starfssvæði sínu. Má þar nefna vöktun vatnafugla á votlendissvæðum í Þingeyjarsýslum utan Mývatns og Laxár,  farfuglavöktun við Öxarfjörð, sjófuglavöktun á Norðausturlandi og fiðrildavöktun í Þjóðgarðinu í Jökulsárgljúfrum. 

Náttúrustofan sinnir einnig ýmsum þjónusturannsóknum en útseld þjónusta er mikilvægur þáttur í starfsemi hennar. Leitað hefur verið til stofunnar með náttúrufarsúttektir og ráðgjöf t.a.m. í tengslum við mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Náttúrustofan veitir fræðslu um náttúrufræði og umhverfismál og hefur gjarnan tekið þátt í námskeiðahaldi á því sviði. Einn starfsmaður Náttúrustofunnar er menntaður kennari.

Náttúrustofan er sveitarfélögum og náttúverndarnefndum á Norðausturlandi til ráðgjafar um náttúruvernd. Einnig er stofan Umhverfisstofnun og stjórnvöldum ráðgjafaraðili um náttúruverndarmál á starfssvæði sínu.

Hér að neðan má sjá ársskýrslur NNA með því að smella á tenglana:

Ársskýrsla 2004
Ársskýrsla 2005
Ársskýrsla 2006
Ársskýrsla 2007
Ársskýrsla 2008
Ársskýrsla 2009
Ársskýrsla 2010


Starfssvæði

Þekkingarsetur Þingeyinga



Mynd