Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Stjórn

 

Samanber lögin um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur geta eitt eða fleiri sveitarfélög á því landshorni sem náttúrustofa starfar gerst aðilar að henni. Þau sveitarfélög sem gerast aðilar að stofunni eiga hana og reka með stuðningi ríkissjóðs. Stjórn náttúrustofu skipa þrír menn sem tilnefndir eru af sveitarfélögunum sem gerast aðilar að henni. Þannig er stjórnun stofunnar alfarið í höndum heimamanna.

Í stjórn Náttúrustofu Norðausturlands sitja þrír menn tilnefndir af rekstraraðilum stofunnar, Norðurþingi og Skútustaðahreppi. Stjórnarformaður er Jón Helgi Björnsson og aðrir stjórnarmenn eru þau Margrét Hólm Valsdóttir og Tryggvi Jóhannsson.


Starfssvæði

Þekkingarsetur Þingeyinga



Mynd